Fréttir

Árshátíð eldri deildar var haldin í gær

Í gærkveldi hélt 7. - 10. bekkur árshátíð í Tjarnarborg og var það í höndum 10. bekkjar að halda utanum hátíðina með aðstoð kennara og hinna bekkjana. Húsfylli var í Tjarnarborg þar sem nemendur, kennarar og foreldrar 10. bekkjar áttu saman góða kvöldstund.
Lesa meira

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar

Í gær fór Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fram í Tjarnarborg en þar leiða saman hesta sína fulltrúar úr 7. bekk og keppa í upplestri og framsögn. Keppnin er haldin meðal 7. bekkinga í skólum um allt land og síðan eru svæðiskiptar lokahátíðir.
Lesa meira

Flottur skíðadagur yngri deildar á Sigló

Í gær fjölmenntu nemendur yngri deildarinnar á Sigló í Skarðið og áttu þar góða stund. Margir voru á skíðum en aðrir á sleðum og þotum og prufuðu jafnvel bretti. 
Lesa meira

Leiklistahópurinn sýnir leikritið Íris

Leiklistarhópurinn mun frumsýna leikritið Iris í vikunni 28. mars - 1. apríl. Leikritið er framlag Grunnskóla Fjallabyggðar í verkefninu Þjóðleikur sem er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og grunnskóla á Norðurlandi. Í framhaldinu verður boðið upp á opnar sýningar á verkinu. Helgina 1. - 3. apríl mun hópurinn fara til Akureyrar og sýna á leiklistarhátið þar sem allir skólar á Norðurlandi sem taka þátt í verkefninu Þjóðleik sýna verk sín.
Lesa meira

Skólahreystikeppni á Akureyri

Föstudaginn 25. mars fer Norðurlandskeppni Skólahreystis fram á Akureyri. Farið verður með alla nemendur í 7. - 10. bekk á keppnina.
Lesa meira

Árshátíð eldri deildar

Miðvikudaginn 23. mars er ÁRSHÁTIÐ ELDRI DEILDAR haldin í Tjarnarborg og opnar húsið kl. 18.00. Árshátíðinni lýkur kl. 22.30.
Lesa meira

Foreldrafundur vegna forvarnarverkefnissins "hugsað um barnið"

Þriðjudaginn 22. mars  kl. 20.00 er fundur fyrir foreldra nemenda í 9. og 10. bekk vegna forvarnarverkefnissins "Hugsað um barn". Fundurinn er haldinn í skólahúsinu við Hlíðarveg Siglufirði.
Lesa meira

Stóra upplestrarkeppnin

Þriðjudaginn 22. mars fer fram lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar þar sem nemendur í 7. bekkjum við utanverðan Eyjafjörð munu keppa til úrslita í upplestri. Keppnin fer fram kl. 14.00 í Tjarnarborg Ólafsfirði. Kennslu á unglingastigi lýkur kl. 13.50 þennan dag.
Lesa meira

Góð gjöf

Í dag barst skólanum gjöf frá fyrrum nemendum Grunnskóla Siglufjarðar, fæddum 1960. Þeir færðu skólanum Owerlook saumavél.
Lesa meira

Ánægjuleg heimsókn

Í morgun fengu yngri deildir skólans ánægjulega heimsókn. Fjórir ungir og efnilegir harmoníkuleikarar frá Dalvík litu inn á báðar starfsstöðvar ásamt kennara sínum, Ave Tonison, og léku nokkur lög fyrir nemendur. 
Lesa meira