19.10.2011
Ný akstursáætlun tekur gildi í dag, Breytingarnar eiga ekki við skólatíma, varða
því aðeins tómastundastarf.
Lesa meira
18.10.2011
Krosskónguló kom sér fyrir í útidyrahurðinni í skólanum við
Norðurgötu nú í haust. Hún hafði verpt þar eggjum sínum og utan um þau ofið fallegan silkihjúp. Hún var flutt þaðan og
henni komið fyrir á öðrum stað.
Lesa meira
12.10.2011
Í tilefni af 150 ára árstíð sr. Bjarna Þorsteinssonar þann 14. október nk. voru unnin ýmis verkefni í eldri deildinni í
gær. Bjarni hefur oft verið nefndur faðir Siglufjarðar en þekktastur er hann fyrir söfnun sína og útgáfu á íslensku
þjóðlögunum auk þess að vera afbragðs lagahöfundur.
Lesa meira
12.10.2011
Í gær var haldin hreystidagur og var líf og fjör í allri yngri deildinni á Ólafsfirði. Nemendur nutu sín í snjónum og
sköpuðu ýmsar kynjaverur á skólalóðinni, yljuðu sér í sundlauginni, hlupu um í Tarzanleik og hlupu Norræna
skólahlaupið.
Á unglingastiginu var Norræna skólahlaupið haldið á Siglufirði þriðjudaginn 11. okt. 2011. Alls tóku 84 nemendur af 101 í eldri deild
þátt í hlaupinu. Nemendur hlupu 2,5 km hring um norðurbæinn og máttu þau hlaupa einn-tvo-þrjá eða fjóra hringi.
Nemendurnir 84 hlupu samtals yfir 500 km eða rétt tæplega 6 km að meðaltali. Bekkir skólans kepptu innbyrðis og það var 10.bekkur BRV sem sigraði
með 7,2 km að meðaltali á nemanda. Grétar Áki og Jakob Snær komu fyrstir í mark hjá strákum eftir 10 km og Rebekka Rut var fyrst í
mark hjá stúlkunum eftir 10 km.
Nemendur í Grunnskóla Fjallabyggðar eiga mikið hrós skilið fyrir þátttöku sína í hlaupinu.
Lesa meira
10.10.2011
Á morgun þriðjudag er hreystidagur í skólanum. Á yngra stiginu verður kennt samkvæmt stundatöflu fyrstu tvo tímana. Nemendur í yngri
deildinni á Siglufirði koma til Ólafsfjarðar um tíu og taka þátt í ýmsum uppákomum eins og Norræna skólahlaupinu,
Tarzanleik í íþróttahúsinu og sundi.
Unglingadeildin tekur þátt í Norræna skólahlaupinu og hefst hlaupið hjá þeim klukkan 13:00.
Mikilvægt er að nemendur mæti vel skóaðir og með húfu og vettlinga ef veður er ekki gott.
Lesa meira
04.10.2011
Í morgun, þriðjudaginn 4. okt., fóru Guðrún iðjuþjálfi og Bjarkey náms- og starfsráðgjafi í heimsókn í
alla bekki eldri deildar.
Iðjuþjálfi upplýsti nemendur um ýmislegt tengt skólatöskunni og áhrif þess ef að hún væri einungis höfð á
annarri öxlinni eða sæti rangt á bakinu. Einnig ráðlagði iðjuþjálfi nemendum um æskilega setstöðu og áhrif þess
að sitja lengi í sömu stöðu við vinnu. Þá ræddi hún um hvað sé gott að hafa í huga við val á
skólatösku, að taskan sé ekki alla daga með öllum námsbókunum í heldur hvernig sé æskilegast bera töskuna og raða í
hana. Nemendur voru hvattir til að prófa að hafa tölvumúsina í vinstri hönd, (þeir sem eru rétthentir) og öfugt fyrir hina, til að jafna
álag á handleggi og herðar. Sjá meira neðar.
Lesa meira
04.10.2011
Nú þegar vetraræfingar eru hafnar hjá íþróttafélögunum hefur verið gerð breyting á
aksturstöflu. Athugið að þetta hefur ekki áhrif á skólaakstur að morgni.
Aksturstafla
Einnig má sjá hér sömu töflu, en í henni eru
merktar með gulum lit þær ferðir sem breytast frá síðustu töflu.
Íþrótta- og tómstundafulltrúi svarar spurningum varðandi frístundaakstur.
Lesa meira
04.10.2011
Viðbragðsáætlun skólans við einelti er nú komin inn á heimasíðuna. Hún tekur á þeirri vinnu sem fer af stað ef upp
kemur grunur um einelti. Eineltisteymi skólans stýrir þessari vinnu.
Áætlunin er geymd undir Olweuslinknum
Lesa meira
30.09.2011
Föstudaginn 30. september er haustþing kennara og því frí hjá nemendum. Haustþingið fer fram í Fjallabyggð og munu kennarar
af Norðurlandi vestra sækja þingið. Boðið er uppá ýmsa fyrirlestra og málstofur auk námsefniskynninga og fer þingið
fram í Ólafsfirði fram að hádegi en eftir hádegi á Siglufirði.
Lesa meira
27.09.2011
Fræðslunámskeið fyrir foreldra barna með ADHD verður haldið laugardagana 15. og 29.október 2011 á vegum ADHD samtakanna.
Námskeiðið verður í fjarfundi og stendur yfir frá kl. 10:00 til 14:45 báða dagana. Lögð
verður áhersla á að foreldrar öðlist góðan skilning á ADHD og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi barna sinna.
Áhugasamir hafi samband á bæjarskrifstofuna í síma 4649100 eða sendi póst á:
hrefna@fjallabyggd.iseða helgah@fjallabyggd.is fyrir 30.september nk.
Félagsþjónusta Fjallabyggðar
Lesa meira