26.09.2011
Nokkrir nemendur 10.bekkjar hafa
verið í dansvali nú í byrjun skólaársins. Þeir luku því námi á föstudaginn og enduðu á að dansa með
nemendum 6.bekkjar á torginu. Báðir þessir bekkir hafa upp á síðkastið æft dans sem saminn var vegna "Alþjóðlega dans
dagsins", sem haldinn er árlega um heim allann. Þó nokkrir áhorfendur voru að þessum viðburði og var dönsurunum vel fagnað.
Lesa meira
26.09.2011
Mikilvægt er að nemendur tileinki sér rétt grip um skriffæri. Rétt grip stuðlar að réttum vinnustellingum og
þar af leiðandi réttrar beitingar líkamans við vinnu. Rangt grip getur leitt til þreytu og sársauka í fingrum, hendi, handlegg, öxlum og
hálsi. Einnig er höfuðverkur og vöðvabólga afleyðing af röngu gripi.
Margir nemendur halda einnig of fast um skriffæri en það getur einnig leitt til álags á hendi og axlir.
Iðjuþjálfi Grunnskólans í Fjallabyggð hvetur foreldra til að leiðrétta rangt grip hjá börnum sínum
og stuðla þannig að bættri heilsu þeirra og líðan.
Leiðbeiningar um rétt grip
Guðrún Þorvaldsdóttir
Iðjuþjálfi
Grunnskóla Fjallabyggðar
gudrun@fjallaskolar.is
Lesa meira
21.09.2011
Þessa vikuna standa samræmd próf yfir í skólanum. Nemendur 10. bekkjar luku sínu þriðja og síðasta prófi í dag en þeir
þreyttu próf í íslensku, ensku og stærðfræði.
Lesa meira
19.09.2011
Síðastliðin föstudag fóru 1. og 2. bekkur á Siglufirði og sýndu myndir á torginu, í hjarta
bæjarins. Myndirnar unnu þau í samfélags- og náttúrufræði, einnig fluttu þau Dalvísu eftir náttúrufræðinginn og
skáldið Jónas Hallgrímsson. Hér má sjá tvær myndir af deginum.
Lesa meira
17.09.2011
Síðastliðin miðvikudag var haldinn hreystidagur
hjá yngri deildinni. Dagurinn var nýttur í gönguferðir og í þetta sinn gengu hóparnir um í þremur fjörðum,
Ólafsfirði, Héðinsfirði og Siglufirði. Veðrið lék við krakkana og hægt er að sjá myndir af deginum á myndavef á
síðunnar.
Lesa meira
15.09.2011
Föstudagurinn 16.
september
Í tilefni af ljóðahátíðinni Glóð sem stendur yfir á Siglufirði 15. -17. september og Degi íslenskrar náttúru, mun
Þórarinn Hannesson heimsækja yngri deildir Grunnskóla Fjallabyggðar á Siglufirði og Ólafsfirði og lesa eigin ljóð sem tengjast leikjum
barna í íslenskri náttúru.
Klukkan 12.30 mun 1. og 2. bekkur á Siglufirði sýna myndir
á torginu, í hjarta bæjarins. Myndirnar unnu þau í samfélags- og náttúrufræði og flytja Dalvísu eftir
náttúrufræðinginn og skáldið Jónas Hallgrímsson.
Lesa meira
14.09.2011
Skólabíllinn er kominn í lag, fyrsta ferð frá Ólafsfirði
verður kl. 10 í dag.
Lesa meira
13.09.2011
Á morgun miðvikudaginn 14. sept verður haldin hreystidagur fyrir 1. -7. bekk. Dagurinn er tileinkaður gönguferðum. Nauðsynlegt er að vera vel útbúin
með staðgott nesti.
Lesa meira
13.09.2011
Á morgun miðvikudag er útivistadagur hjá 1.-7. bekk. Dagurinn er tileinkaður gönguferðum þar sem hver bekkur gengur mismunandi gönguleiðir.
Nauðsynlegt er að vera vel útbúin og með staðgott nesti.
Lesa meira
08.09.2011
Foreldrafundir hefjast í næstu viku. Fundir verða boðaðir af umsjónarkennurum í gegnum MENTOR
Mánudag 6. bekk
Þriðjudag 5. bekk
Miðvikudag 4. bekk
Fimmtudag 3. bekk
Lesa meira