28.04.2011
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla –
landssamtaka foreldra, verða afhent í 16. sinn við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu þriðjudaginn 24. maí
næstkomandi.
Lesa meira
27.04.2011
Sara, Sólveig, Þórunn og Helena könnuðu hvort merktir jaðrakanar væru á leirunum. Þær sáu enga merkta, en þarna voru um 40
jaðrakanar, lóur, stelkar, hettumáfar og nokkrar andategundir, t.d. hin litskrúðuga straumönd.
Lesa meira
27.04.2011
Rétt fyrir páska var tilkynnt um úrslit í teiknisamkeppni
Alþjóðlega skólamjólkurdagsins, en hann er síðasta miðvikudag í september ár hvert. Í
ár bárust um 1300 teikningar frá 60 skólum víða að af landinu m.a. frá nemendum í 4. Bekk Grunnskóla
Fjallabyggðar.
Lesa meira
12.04.2011
Hin árlega Vorskemmtun 7. bekkjar fer fram í Allanum á Siglufirði fimmtudaginn 14. apríl og eru sýningar kl. 16.00 og 20.00. Samkvæmt venju eru
það nemendur yngri deildarinnar á Siglufirði sem koma fram, þ.e. nemendur 1. - 6. bekkjar, ásamt nemendum 7. bekkjar.
Lesa meira
11.04.2011
Í vetur hefur starfsfólk skólans unnið að starfsáætlun og skólanámskrá fyrir nýjan skóla. Eftirfarandi sýn
er höfð að leiðarljósi.
Lesa meira
09.04.2011
Nemendur í Grunnskóla Fjallabyggðar sýna síðustu
sýningu á leikverkinu Irisi eftir Brynhildi Guðjónsdóttur og Ólaf Egil Egilsson á morgun sunnudaginn 10. apríl í Tjarnarborg kl.
16:00.
Um er að ræða nýtt verk sem skrifað var sérstaklega fyrir Þjóðleik en það er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins
og leikhópa á Norðurlandi og fór fram síðastliðna helgi á Akureyri. Það eru unglingar í leiklistarvali grunnskólans sem flytja
verkið.
Miðaverð er 1000 krónur fyrir fullorðna en frítt fyrir börn 16 ára og yngri.
Athugið að þessi sýning er ekki við hæfi ungra barna.
Lesa meira
08.04.2011
Miðvikudaginn 13. apríl kl. 17:30 verður árshátíð 1.-6. bekkjar Ólafsfjarðarmegin haldin í Tjarnarborg. Miðaverð er 1000
krónur fyrir 7. bekkinga og eldri. Þar munu bekkirnir sýna atriði sem þeir eru búnir að vera að æfa undanfarnar vikur. Vonumst til að sem
flestir sjái sér fært að mæta.
Lesa meira
06.04.2011
Tónlist fyrir alla er verkefni þar sem grunnskólum landsins stendur til boða að fá þekkta tónlistarmenn í heimsókn með
áhugavert efni. Að þessu sinni voru það Heimsmenn sem heimsóttu Grunnskóla Fjallabyggðar.
Lesa meira
31.03.2011
Í vetur hafa nemendur í leiklistarvali skólans æft upp nýtt íslenskt leikverk undir stjórn Sigmundar Sigmundssonar. Verkið heitir Iris og var
skrifað sérstaklega fyrir Þjóðleik, sem er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og ýmissa leikhópa á Norðurlandi, og er
það eftir Brynhildi Guðjónsdóttur og Ólaf Egil Egilsson.
Lesa meira
31.03.2011
Í gær var farið með nemendur yngri deildar á Ólafsfirði yfir í Skarð þar sem þeir skemmtu sér ýmist á
skíðum, bretti eða þotum. Veðrið lék við mannskapinn og færið var mjög gott. Komnar eru inn myndir af deginum.
Lesa meira